Leiguverð lækkar á Húsavík

23.11.2020

Leiguverð lækkar á Húsavík

Verkefnisstjórn Gaums sækir árlega upplýsingar til Þjóðskrár um þróun leiguverðs á Húsavík. Upplýsingar um leiguverð byggja á þinglýstum leigusamningum hvert ár. 

Þær forsendur sem eru notaðar þegar gögn eru sótt á Þjóðskrá eru herbergjafjöldi á bilinu 2-6 herbergi, stærð á bilinu 40-250 m2 og byggingarár frá 1920. 

Ef þróun leiguverðs er skoðuð frá því að vöktun hófst á vettvangi Gaums má sjá að fermetraverð hefur hækkað um 72% á Húsavík. Við upphaf vöktunar var fermetraverðið 765 kr/m2 en var á árinu 2019 1313 kr/m2.

Upplýsingar um leiguverð utan Húsavíkur eru ekki birtar þar sem afar fáir þinglýstir leigusamningar eru utan Húsavíkur á vöktunarsvæðinu.