Skipakomum fækkaði í Húsavíkurhöfn

26.02.2020

Skipakomum fækkaði í Húsavíkurhöfn

Nú hefur vísir 1.7 c. Samgöngur á sjó, flutninga- og skemmtiferðaskip verið uppfærður fyrir árið 2019. 

Flutningaskip sem höfðu viðkomu í Húsavíkurhöfn voru 65 á árinu 2019. Árið áður voru þau 64 en flest voru þau árið 2017 þegar 72 skip höfðu viðkomu í Húsavíkurhöfn. Farþegaskip sem höfðu viðkomu í Húsavíkurhöfn voru 29 á árinu 2019. Til samanburðar voru þau 41 árinu 2018 og höfðu þá aldrei verið fleiri.

Það er mjög athyglisvert að skoða þróun skipakoma á vöktunartíma Gaums. Á árunum 2011-2014 sem er tíminn áður  en uppbygging í tenslum við Þeistareykjavirkjun og PCC BakkiSilicon hófst höfðu einungis 3-4 flutningaskip viðkomu í Húsavíkurhöfn ár hvert og 2-7 skemmtilferðaskip. Umsvif við Húsavíkurhöfn hafa því farið úr því að vera samtals fæst aðeins 5 flutninga- og skemmtiferðaskip á ári í að vera flest 105 skip eða 21 sinni fleiri en þegar fæst skip komu.