Skipakomur 35 fleiri en árið 2021

19.09.2023

Skipakomur 35 fleiri en árið 2021

Gaumur fylgist með komum skipa til Húsavíkurhafnar. Fylgst er sérstaklega með komum farþegaskipa og flutningaskipa. 

Skipakomum fækkaði umtalsvert þegar heimsfaraldurinn COVID-19 skall á en það ár komu til að mynda engin farþegaskip til Húsavíkurhafnar og komur flutningaskipa voru álíka margar og í aðdraganda uppbyggingar Þeistareykjavirkjunar. Á árinu 2022 eru komur farþegaskipa orðnar eins og best var fyrir heimsfaraldurinn og hafa aðeins einu sinni verið fleiri. Komur flutningaskipa voru umfram það sem var á háönn byggingatíma og hafa aldrei verið fleiri en á árinu 2022. Flutningaskipin voru all 77 og farþegaskipin 36 eða rúmlega tvö skip á viku að meðaltali yfir árið.

Sjá nánar um skipakomur í vísi 1.7.

Mynd: Framsýn