Litlar breytingar á kynjahlutföllum starfsmanna Landsvirkjunar og PCC BakkiSilicon

26.02.2021

Litlar breytingar á kynjahlutföllum starfsmanna Landsvirkjunar og PCC BakkiSilicon

Kynjahlutföll starfsmanna Landsvirkjunar og PCC BakkiSilicon hafa nú verið uppfærð til samræmis við það hvernig þau voru við upphaf ársins 2021. 

Fjöldi starfsmanna í Kröflustöð sem jafnframt sinnir Þeistareykjavirkjun var óbreyttur á milli áranna 2020 og 2021. Við Kröflustöð starfa 25 manns, þar af 22 karlar og 3 konur. Hlutföll kynjanna eru óbreytt á milli ára þar sem 88% starfsmanna eru karlar og 12% konur. 

Hjá PCC BakkiSilicon fækkaði starfsmönnum úr 154 í 57 á milli áranna 2020 og 2021. Áformað hafði verið að stöðva framleiðslu fyrirtækisins í ágúst til að fara í endurbætur á reykhreinsivirki verksmiðjunnar og ofnum hennar. Vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins var framleiðslan hins vegar stöðvuð ótímabundið. Faraldurinn hafði þær afleiðingar að það dró úr eftirspurn eftir kísilmálmi og heimsmarkaðsverð á kísilmálmi lækkaði umtalsvert. Því var gripið til hópuppsagnar og ótímabundinnar framleiðslustöðvunar í verksmiðjunni. Í júní, um mánuði áður en til framleiðslustöðvunarinnar kom, störfuðu 145 manns hjá fyrirtækinu, þar af 120 karlar (83%) og 25 konur (17%). 

Þróun á kynjahlutfalli starfsmanna Landsvirkjunar og PCC BakkiSilicon má sjá í vísi 1.3 Jafnrétti kynjanna.