Umferð að Kröflu eykst á milli ára

16.08.2022

Umferð að Kröflu eykst á milli ára

Umferð að Kröflu jókst um 84% á milli áranna 2020 og 2021. Á árinu 2021 komu 41.272 bílar að Kröflu í samanburði við 22.374 bíla árið áður. Þó aukningin sé mikil þá hafa ekki færri bílar komið að Kröflu á vöktunartíma Gaums en þessi tvö ár. Árið 2016 komu 68.400 bílar þangað og árið eftir sem er það ár sem flestir bílar hafa komið að Kröflu á vöktunartímanum komu 94.712 bílar að Kröflu.

Umferð að Þeistareykjum hefur dregist samn frá árinu 2018 og heldur sú þróun áfram á árinu 2021. Alls komu 4.207 bílar að Þeistareykjum árið 2021 en flestir voru þeir árið 2017, alls 25.522. 

Vísir 1.7 sýnir þróun umferðar við Kröflu og Þeistareyki.